|
|
31.05.2009 11:44:16 / ingunn-norge
Langaði bara að skrifa smá blogg,  Í dag er ég að fara á Tok eyjuna, þar förum við í nokkrum hópum og lifum úti í einn dag. Við veiðum fisk og eldum og sofum svo úti undir berum himni, vona að þetta verði næs ferð, veðrið er líka svo æðislegt í dag að okkur ætti ekki að vera voðalega kallt allavega ekki mér ég tek með mér ullarpeysuna góðu !! Í gær voru 2 menn með kynningar um skóla í Bretlandi og Bandaríkjunum og var það mjög áhugavert að sjá hvað þeir hafa uppá að bjóða ! Ég er enn óviss hvað ég vil en ég er samt komin með ákveðnar hugmyndir sem ég er þó ekki tilbúin til að gefa uppi alveg srtax!! Ég horfði á mjög sætt Youtube myndband í dag og langar að setja linkinn hérna inn svo allir geti horft. Ef þú hefur trú og ert sterkur/sterk þá finnuru alltaf veginn heim aftur, sama hversu langt þú ferð !! Allir að horfa! --> http://www.youtube.com/watch?v=lPyjGkZqwUc&eurl=http://www.youtube.com/user/goonieman86?blend=1&ob=4&feature=player_embedded
»
27.05.2009 10:27:21 / ingunn-norge
Jæja þá er ég komin á skólasvæðið aftur eftir að hafa verið á lítilli eyju síðan á sunnudag. Á laugardagskvöldið fóru 2 árs nemar frá okkur og var það mjög erfiður dagur fyrir alla!! Okkur fannst pínu erfitt að fara strax daginn eftir strax í skólaferðalag þar sem við fórum á eyju sem heitir Svanoy (Svanoy.com) þetta er 11km 2 falleg eyja sem við fórum til þess að rannsaka í náttúrufræði og eða líffræði. Það sem við rannsökuðum var fjaran þar og svo hreindýra/dádýra bú. Á sunnudeginum gerðum við ekki svo mikið ég fór af stað til svanoy með rútu klukkan 11 um morguninn. Þegar við komum þangað þá fórum við í smá sjálfboðavinnu að hreinsa upp dauð tré/greinar og hlaða því upp í hrúgur svo að það gæti verið brennt. Tilgangurinn með þessu var að hreinsa tré sem að dýrin höfðu drepið til þess að grasið gæti farið að vaxa á ný fyrir kindurnar og önnur dýr. Og þegar við vorum að þessu vann ég bara eins og ég er vön og strákarnir enduðu með þá skoðun að ég væri ekki kona, ég væri eitthvað allt annað vegna þess hversu sterk ég er og að mér var nokk sama um drulluna sem var þarna hehe  Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég fæ þennan stimpil á mig þar sem youssef kallar mig alltaf kvennmanns útgáfuna af Jens !!  snilld ! Á mánudaginn fórum við svo og skoðuðum hrein- ogdádýra búið sem var mjög áhugavert. Síðar þann dag fórum við útí fjöru og skoðuðum svæði þar og hver munurinn var ef að hærra var farið. Hvaða tegundir dýra var að finna á hærri svæðum og hvaða dýr var að finna á lágum svæðum nær sjónum og það sama var kannað með þara. Síðan um kvöldið og um morguninn á þriðjudeginum þá byrjuðum við á skýrslum sem við eigum að skila inn um báðar þessar vettvangsferðir. Þetta var ágætis ferð en allir voru mjög þreyttir eftir andleg átök laugardagsins. En annars þjappaði þetta 1 árs nemunum saman og mér finnst ég nánari mörgum núna heldur en ég var áður svo að eftir allt þá var þetta ekkert svo slæmt. En núna held ég að ég sé að verða veik, ég er með beinverki, og hausverk og kannski hita er ekki viss. VONANDI ER ÉG EKKI KOMIN MEÐ SVÍNAFLENSU !!!!  -Ingunn piggy
»
20.05.2009 14:11:11 / ingunn-norge
neineineineineinieneinie, afhverju líður tíminn svona fljótt !!!! Það er búið að vera svoooo mikið að gera strax og prófin voru búin í seinustuviku þá var nóg að gera þá helgi, eurovision og starfsmanna sýning sem var rosalega mikið stuð, stolt af því að vera íslendingur á heyra jóhönnu syngja hún var landi og þjóð til mikils sóma !  Svo seinasta sunnudag þá var þjóðhátiðar dagur Norðmanna og við fórum til Dale í skrúðgöngu og það var líka alvegæðislegt þar sem að veðrið lék við okkur, engin smá blíða  Svo er þessi vika búin að líða svo hratt, 2 árs nemarnir eru að klára prófin og þau seinustu eru á föstudaginn. Jens og Youssef kláruðu í dag svo að þeir eru búnir, með IB FOREVER !!!! Heppnir  Svo í fyrradag komu Mamma, amma og bróðir Jens. Við höfum verið að hanga með þeim á kvöldin og ég fékk gjöf frá mömmu hans, svona hálfgerða klemma sem er hægt að klemma saman sjal utan um axlirnar svo er líka hægt að setja hana í hárið. Hún er búin til úr hreindýra hornum og er í laginu eins og hjarta, ekkert smá krúttleg. En já aftur að efninu, afneitun og jákvæðu byrjun þessa þunglyndis blogg míns. Á föstudaginn er foreldrasýning þar sem 1 árs nemar sjá um foreldra alla á meðan 2 árs nemarnir fá góðan kvöldverð með kennurum og SVOOOO á laugardaginn er útskiftin  það er eftir 3 daga..... og á laugardagskvöldinu fara 2árs nemarnir......  Ég er í afneitun, ég vil ekki að tíminn gangi lengur, ég vil að hann stoppi núna, auðvitað langar mig að koma heim og hitta alla en mig langar til að þegar ég kem aftur þá hitti ég alla aftur, en það er ekki svo gott......... Þetta verður svo erfitt, 1ár er engin tími er alveg búin að finna það  Og þarna er ég farin að tala á móti sjálfri mér því að ég get hitt þetta fólk aftur eftir eitt ár skellt mér til Egyptalands en maður veit aldrei og allt kostar svo mikla peninga........peningar skipta of miklu máli, væri það ekki yndislegt ef maður gæti ferðast frítt útum allt það væri æði !!! Já ég veit ekki alveg hvernig þessi laugardagur verður, verð örugglega alveg til í mömmu og pabba knús eftir hann ! Það var svo skrítið þegar við komum þá byrjaði maður svona aðein að hugsa um þetta en svo hætti maður því því að það var ekkert vit í því, dagurinn var svo langt í burtu, en núna er hann næstum kominn    Fyrir 2 árs nema eru þetta líka mjög blendnar tilfinningar, þau eru glöð yfir því að vera að fara heim, flest að eyða tíma með fjölskyldum sínum en svo á sama tíma eru þau að fara frá svo mörgum vinum sem þeim langar að geta hitt á hverjum degi eins og vanalega. Æi........stundum veit ég ekki afhverju ég er að velta mér uppúr þessu, það er ekkert sem ég get gert, þau fara hvort sem ég eða þau vilja það eða ekki............ Ingunn the blue
»
14.05.2009 17:23:05 / ingunn-norge
JESSS loksins er þetta búið. Vikan sem leið var ansi strembin, prófprófpróf!!! Var ekki í neinu prófi á mánudag en svo á Þriðjudag og miðvikudag var ég í tveimur beint á eftir hvert öðru, ekki sniðugt og í dag var ég í einu "prófi". Hver próf er oftast um 2 tímar svo að það tekur helvíti mikið á að sitja í prófi í 4 tíma með aðeins um15 mínútur milli prófa ....... á þriðjudag var ég í E-systems prófi (almenn náttúrufræði) og svo eftir það var ég í Ensku prófi. E-systems var ekkert of gott þar sem að ég gat ekki svarað ritgerðar spurningunni almennilega svo að ég missti líklegastg nokkuð mörguð stig þar  Svo pirruð og reið yfir mistökum mínum í því prófi fór ég beint inní enskuprófið sem gekk alveg ágætlega. Við fengum 2 texta sem á að bera saman og skrifa "ritgerð" sem ég er ekkert of góð í að gera en ég reyndi bara að skrifa eins mikið og ég gat án þess að kannski að byggja það upp sem best ....  hehe  Svo á mmiðvikudaginn, í gær var ég í tveimur mjög erfiðum prófum- Heimspeki (philosophy) og Stærðfræði !!! Á þriðjudagskvöldið fékk ég Malin sænsku snótina-herbergisfélaga minn til þess að hjálpa mér að byggja upp góða ritgerð í heimspeki þar sem að við áttum að skrifa tvær. Önnur var um heimspekilegar hugmyndir sem við fengum um list mun sem við völdum þegar 2 árs nemar í list voru með sýningu á verkum sínum. Ég valdi mynd sem er kölluð religion og tengdi hana við frelsi og ef að trú takmarkar frelsi okkar. Afþví að við höfðum valið hlutinn fyrirfram gátum við undirbúið okkur fyrirfram til að gera góða ritgerð ! Hérna er myndlista hluturinn sem ég skrifaði um: Seinni parturinn var úr bók sem heitir Baghavad gita og er eins og hálfgerð biblía hindúatrúar. Við fengum 2 spurningar við áttum svo að velja eina af þeim og skrifa um, sá partur hjá mér var ekkert of góður en ég vona að fyrri parturinn bjargi mér hehe  Eftir heimspekiprófið var svo stærðfræðipróf sem að gekk svona glimmrandi vel  Svo í dag var ég í "prófi" í leiklist sem að var í rauninni bara nokkrar spurningar sem við áttum að endurspegla hvað okkur fannst við hafa lært, hvað okkur fannst áhugaverðast af því sem við gerðum og eitthvað svoleiðirs svo það var nú varla próf. Svo núna er það smá aflsöppun í dag og svo á morgun þarf ég að byrja á fullu á rannsóknar ritgerð sem að þarf að skila inn þann 19 í leiklist  Alltaf nóg að gera, hahaa !! Svo á sunnudag er þjóðhátíðarfagur Noregs svo að þá verður nú fullt að gera, var beðin um að syngja í haugland endurhæfingarmiðstöðinni fyrir fólkið sem er það svo að ég verð nú ekki aðgerðarlaus Næsta vika verður líka mjög skemmtileg þar sem að mamma, amma og bróðir Jens eru að koma fyrir útskriftina hans sem er á laugardaginn þann 23 og svo um kvöldið fara 2 árs nemarnir...... þessi dagur verður erfiður en það er um að gera að reyna að halda uppi gleðinni þangað til þann 23 um klukkan 19:00    Annars myndu allir hérna liggja i þunglyndi held ég hehehe Sólin er farin að skína alveg á fullu og allir komir í sumar gír, farnir að sitja úti og lesa í stað þess að hanga inni  ÉG hlakka rosalega til þess að koma heim og ég vona að ég nái að gera sem mest með Jens því hann kemur heim með mér frá 5 -16 júní, fjör !! jæja ætla að flýta mér útí sólina og fara að fá mér kvöldmat. Vonandi eiga allir góða helg með fullt af sól !!! -Ingunn sólskinsbarn
»
22.04.2009 11:26:02 / ingunn-norge
Jæja það er búið að vera nóg að gera hjá mér. Ég skellti mér
heim í páskafríinui eins og margir vita. Ég veit að þvímiður á heimsótti ég ekki alla en ég
hafði aðeins 5 daga og þurfti að gera slatta á þeim. En það var rosalega gaman
djammaði aðeins og hafði gaman en svo var ég líka bara að slaka á heima hjá
mömmu og pabba. Mamma og Pabbi vissu hinsvegar ekkert að ég væri að koma heim,
það var það skemmtilega !! Ég beið fyrir horninu þar sem klósettið er og Pabbi
labbaði fyrir hornið og labbaði eiginlega á mig, hann horfði á mig og eftir að
hann sá Snorra (frænda minn, sem var svo góður að skutla mér heim :-)) áttaði
hann sig á því hver þetta var, mjög fynndið. Viðbrögð mömmu voru samt engu lík,
ég kom fyrir hornið og faðmaði hana, brosti og sagði hæ. Hún varð gjörsamlega
orðlaus og horfði á mig eins og hún áttaði sig ekki alveg hvaða ókunnuga
manneskja var í húsinu hennar svo féllust henni hendur og hún sagði með mjög
undarlegum svið „hvað ertu eiginlega að gera hérna....“ hehehe ég beið eftir að
hún segði , farðu þú átt ekki að vera hérna þetta er ekkert að gerast. En hún
sagði það nú ekki blessunin :* Hún faðmaði mig og svo féllu nokkur tár,
Sigurbjörg var bara ánægð og faðmaði mig en Margrét litla fór að gráta og
sleppti mér ekki næsta hálftímann! Við skelltum okkur svo á tónleika með
Margréti Eir sem var mjög ljúft. Næsta dag var farið uppá tún til þess að
sprauta rollurnar, það var mjög mikið fjör. Öll fjölskyldan fór saman +Snorri og sprautuðum nokkar óléttar rollur Ég
gerði svo alveg nokkra aðra skemmtilega hluti eins og að fara í sund bæði heima
og í Varmahlíð og auðvitað var ís og pulsa í varmó. En já þessi ferð var
æðisleg og það var svoooo gott að vera heima þó það hafi aðeins verið 4-5 daga
mér fannst ég svo endurnærð andlega svo að það var alveg þess virði að fljúga
heim!
Svo er ég núna komin aftur til Noregs sem er alveg ágætt en
samt þreytandi það er búið að vera svo mikið heimanám undan farið og mér finnst
eins og ég nái aldrei að klára það, það bætist bara endalaust ofaná svo ef ég
klára eitthvað þá kemur bara eitthvað annað í staðin.... pínu þreytandi.
Svo eru prófin líka að nálgast, fyrsta prófið mitt er
íslenska sem að er í tveimur hlutum. Þessi helgi er munnlegtpróf þar sem ég fæ
úrdrátt úr einni bók sem ég hef lesið og þarf að greina hvað er að gerast,
hvernig presónur eru sýndar í úrdrættinum og fyrir þennan part fæ ég líka 2-3
spruningar sem ég þarf að svara og bæta svo við upplýsingum og greina. Þessi
fyrri hluti á að taka um 10-15 mín og þarf ég að blaðra um Engla alheimsins eða
Eddukvæði í þann tíma, ég vona til Guðs að ég fái Englana það er svo miklu
skemmtilegra að tala um. Svo seinni hluti munnlega prófsins er að mér eru
gefnar tvær spurningar úr einhverjum af bókunum úr seinnihlutanum og ég þarf að
velja eina og svara. Ég veit að þetta verður spurning úr einhverjum af aðal
atburðum eða aðalhlutum bókarinnar svo að ég vona að ég þekki bækurnar nógu
vel. Bækurnar sem eru fyrir seinnihlutann eru Hafið, Of mice and men( er ekki
með hana á íslensku) og svo Dís. Svo fyrir prófin sem eru 4-5 Maí eru bækurnar
Grettisaga, sjálfstætt fólk (EKKERT SMÁ LEIÐINLEG!!) Og svo eru það einhverjar
fleiri ein eða tvær sem ég man ekki alveg, en er búin að lesa þar samt...
Held að þetta eigi alveg eftir sleppa fyrir horn, við Ingvi höfum verið að
hittast og tala saman um bækurnar til þess að muna sem mest og líka bara til
þess að æfa íslenskuna sem er farin að gleymast smá stundum en það hjálpaði
samt að fara heim og tala bara íslensku. Ingvi á svo afmæli í dag svo að ég fer
í smá veislu í kvöld, gaf honum í gær klukkan 12 ( þá er alltaf haldið smá uppá
afmæli fólks) kort með myndum af okkur síðan í „gamla“ daga og svo gaf ég honum
harðfisk stykki . Mér fannst pínu fynndið að allstaðar á borðinu í kringum hann
voru kökur og sætindi en hann borðaði það ekki fyrst heldur byrjaði á því að
borða smá harðfisk hehe Var greinilega ánægðu með stykkið sem hann fékk!
HEY og ég var mjög dugleg fyrir seinasta stærðfræði próf að
fara yfir og æfa mig og ég fékk fyrstu sjöuna mína !!! einkunnirnar hjá IP
(international baccalaueate) eru frá 0-7, er mjög ánægð Með þetta !!!
Gleymdi líka að segja að þegar ég fór til baka til Noregs þá
fékk ég mér gleraugu í fríhöfninni, var alveg hætt að sjá á töfluna í
skólanum..... svo nú er ég stundum gleraugnaglámur en það var bara mælt -0.5 á
báðum sem er nú varla neitt ! ;-) ÞAu eru mjög flott umgjörðin á hliðunum er svona brún svört og svo er umgjörðin utanum glerin svona gull/bronslitað mjög flott og ég er búin að fá mörk komment um hvað þau fari mér vel.

Jæja ég ætla að fara að gera eitthvað af viti, vona að þið
eigið góðan dag !
OG mig langar líka að þakka öllum þeim sem sýndu stuðning í hvaða formi sem það var, í að hjálpa mér að koma heim, skiptir ekki máli þó það
hafi verið e-mail til að segja vonandi gangi þér vel, eða að ég hafi fengið að gista eða koma í heimsókn. Það var mjög gott
að sjá hvað fólk var jákvætt gagnvart því að hjálpa mér, Takk ALLIR !!!
-Ingunn-slingunn
»
03.04.2009 06:53:12 / ingunn-norge
úff loksins er komin helgi, er búin að hlakka svooooo til þess að fá helgina til þess að slaka á !!  Það er búið að vera ótrúlega mikið að gera alla vikuna hjá mér. Og ég er auðvitað líka svo rosalega lagin við að hlaða miklu á mig  Annars árs nemar í leiklist hafa verið að gera sín IP og ég var í tveimur. IP- stendur fyrir Individual performance ef ég man það 100% rétt og þurfa allir þeir sem taka leiklist að gera þetta verkefni. Það er tekinn partur úr leikriti og öll vinna sem því tengist gerð af nemandanum. Oftast gerir hver og einn nemandi einn sitt IP en það er einnig hægt að vinna saman. Eins og ég sagði var ég í tveimur IP og var mikið af æfingum vegna þeirra bæði seinustu viku og þessa viku. Fyrsta IP var hjá Nínu frá Albaníu hún var með leikrit sem var úr leikriti sem var á tímum Troy, það var mjög alvarlegt leikrit en gaman samt sem áður, seinna verkefnið var lagið "It´s a hard knock life" úr söngleiknum Annie. Við gerðum það í mötuneytinu í kvöldmatnum í gær og það tókst mjög vel  Ég var Annie svo að ég var með smá einsöng sem að tókst rosavel ! Engin vissi af því að við ætluðum að sína þetta svo að þetta kom öllum á óvart en það var mjög vel klappað fyrir okkur þegar við vorum búin að syngja og auðvitað lékum við líka með og var það allt mjög vel planað af Natalino frá Austur Tímor. Svo höfum við einnig verið í þessari viku frá 14:15 strax eftir skóla í Leirskule þjálfun. Krakkar allstaðar frá Noregi koma í skólaferðalag og eyða 5 dögum í skólanum og þurfum við að sjá um að þau hafi nóg að gera. Það var hægt að velja milli afþreyinga til að gera með þeim en auðvitað fengu ekki allir það sem þeir völdu númer eitt en ég fékk Haugland adventure- sem gengur útá það að fara með þeim í leiki, ratleik með kort og kenna þeim að lesa áttavita. Þetta er búið að vera mjög gaman en hefur gert vikuna enn erfiðari því að strax eftir skóla förum við í lekirskuleg þjálfun á svo strax eftir það í kvöldmat. Svo eftir kvöldmat þá hef ég verið með æfingu annaðhvort fyrir eina af IP-unum sem ég var í eða fyrir African show sem er núna um helgina, já ...mér tókst að troða mér í það líka African show- Fólkið sem er frá afríku í skólanum heldur sýningu fyrir alla hina í skólanum og fær auðvitað aðstoð frá öðrum sem eru ekki frá afríku ef þau þurfa/vilja. Við sem fórum til Eþíópíu ákváðum að dansa smá Eþíópískan dans og höfum verið að æfa fyrir það og svo er ég í einu örðu atriði þar sem ég er bara að standa og dansa pínulítið  Vonandi á þetta allt eftir að takast vel !! Nú er líka búið að sýna báðar IP sem ég var í og á laugardag verður Afríkusýningin búin svo að á sunnudag.....ahhhh....... þá verður allt þetta stress búið. Og bráðum kemur fríið, það verður notarlegt  Er núna í E-Systems tíma að horfa á Planet Earth, ekkert smá flott !! Skil ekki hvernig þeir ná öllum þessum ógeðslega flottu myndum neðan úr iðrum hafsins...ótrúlegt !! HEY !! Svo fékk ég Jólagjöfina mína frá fjölskyldunni í vikunni. Þau gáfu mér pening til þess að kaupa i-pod. Ég bætti smá við sjálf og fann ógeðslega flottan i-pod touch i E-bay, Ekkert notaðan og aðeins til í 400 eintökum, hann er gylltur, ekkert smááá kúl !!!!  Keypti hann og fékk hann sendann í vikunni Já, hlakka til þess að fá helgi og slaka á Vona að allir eigi góða helgi og þeir sem eru byrjaðir í Páskafríi njóti þess !!!! Góða helgi
»
26.03.2009 08:52:31 / ingunn-norge
Gender and sexuality dagur var hjá okkur í gær sem var mjög gaman. Eitt af því sem var gert er að það var klæðskiptinga dagur  Stelpur klæddust sem strákar og strákar sem stelpur. Það var ekkert smá áhugavert hversu auðvelt það var fyrir stráka að breyta sér í stelpur því að þeir geta bætt á sig fullt af auka hlutum eins og bjóstum og varalit og hárdót. En fyrir stelpur er það mun erfiðara því að við getum ekki tekið það sem við þegar erum með í burtu. Þetta var samt mjög gaman að geta klætt sig sem strák í heilan dag og strákarnir voru ekkert smá fyndnir !!  Í þröngum pilsum og í sokkabuxum haha  það var alveg frábært að sjá hegðunina líka. ÞEir reyndu sumir að haga sér alveg eins og stelpur. Einn af stráknum var að tala við mig um morguninn og eftir að hann spurði hvernig ég hefði það þá spurði ég sömu spurningar á móti og hann svaraði: Æi veistu ég veit það ekki, ég svaf eitthvað svo illa, þú veist hvernig þetta er þegar maður er á túr............  hahaha ég hélt ég myndi deyja úr hlátri þegar hann sagði þetta og hann hélt andlitinu allan tímann, góður leikari !!  Ég og Eva klæddum Jens auðvitað upp í svart pils og bleika peysu af mér og svo var hann með sólgleraugun hennar Evu, algjör gella ! Ég og Evva vorum svo klæddar upp af Jens og voru geggjaðir naglar, ég í svölum leiðurjakka og Eva með sólgleraugu. Það voru líka mjög áhugasaman umræður í tímum þennan dag. Til dæmis afhverju við hlægjum þegar strákarnir labba inn í mötuneytið í pilsum og með varalit, er það ekki bara fordómar ? Afhverju mega strákarnir ekki klæða sig svona án þess að við hlægjum að þeim ? Er það bara vegna þess hvernig við erum alin upp að við veljum þau föt sem við í raun klæðumst eða er það líka vegna þess að það er líka eitthvað sem er tengt genum ? Leiksýningin okkar seinasta laugardag gekk rosalega vel og fengum við feedback frá Peter kennara 2 árs nemana í leiklist og hann sagði við okkur : Ég var að hugsa um að kenna ekki leiklist á næsta ári því að mér finnst eins og ég sé orðin þreyttur á því að kenna þetta fag. Þið hinsvegar hafið breytt þeirri skoðun og gert mér grein fyrir því að það væri algjört brjálæði að kenna ekki leiklist á næsta ári. Þessi sýning var frábær og fullt af sniðugum og krefjandi hugmyndum og ég hlakka mjög til þess að vinna með ykkur, þið virðist vera mjög spennandi hópur til að vinna með  Ekkert smá góð meðmæli !!! Og við vorum mjög ánægð með þetta allt  Ég reyni að setja inn mynbandið af sýningunni ef það virkar hjá stráknum sem tók það upp.....  Endilega kommentið hvað ykkur finnst um klæðaburð fólks, gen eða uppeldi ?? Það er líka komið inn myndaalbúm með myndum frá GAS deginum
»
20.03.2009 11:48:49 / ingunn-norge
YESSSSSS, Loksins komin helgi Það þýðir bæði eitthvað gott og slæmt.Byrjum á því slæma: Það þýðir að á morgun Laugardaginn 21.Mars er" leik"sýning hjá leiklistarhópnum mínum.......stressssssss !! Við erum ekki næstum tilbúin til þess að gera þetta en þetta verður vonandi í lagi þegar við rumpum þessu af Leikritið fjallar um það hvernig við látum hluti stjórna okkur og notum við í okkar dansverki tísku sem dæmi. Hvernig tíska stjórnar okkur og leifir okkur stundum ekki að sýna t.d eigin persónuleika, því að allir klæða sig "eins". Ég get kannsi reynt að úskýra söguþráðinn betur þegar við erum búin að sýna og ég hef myndband sem þið getið séð en sýningin er aðeins um 20-25mín Svoooooo á laugardagskvöldið þá er partý !!! Hlakka svooo til, við höfum ekki haft neitt cabin partý síðan fyrir jól svo að þetta á eftir að vera mjög gaman held ég Annars fyrir utan þetta þá var global concerns á fimmtudag þar sem talað var um norðurlönding og allskonar vandamál rædd. Til dæmis held ég að það vita fáir að Noregur er einn af stærstu vopna framleiðendum í heiminum ! What, ég hefði aldrei getað trúað þessu ....... Ég hélt að þeir stæðu allir með friðarfána og vildu ekki stríð en það er ekki raunverukeikinn 1% af GDP í Noregi kemur frá vopnaframleiðslu og það sýnist vera mjög lítið en Norska GDP árið 2007 var um $257.400.000.000 sem eru um 29,174.9362906 ISK eitt prósent af þessri gríðarlega stóru tölu er því ansi mikið! Það var einnig talað í kynningunum um konungsfjölskyldurnar og tilgang þessa, sem ég sé því miður ekki. Það er engin munur á þeim og forseta, þau hafa MJÖG takmarkað vald og þurfa í raun bara að vera sæt og fara á fundi og ferðast fyrir þjóðina.... afhverju eru þessi lönd ekki bara með forseta. Finnst þetta pínu snobb, svo verður fólk sem giftist inní konungsfjölskylduna að vera Þjálfað.. kommon þetta minnir mig á þegar pabbi er að þjálfa hundana. Er ekki betra að konungsfjölskyldan sé bara hún sjálf og þurfi ekki að setja upp einhverja grímu alltaf, mér finnst það bara ekki eðlilegt. Svo var rætt um Tónlist á norðurlöndunum og ég komst að þeirri sorglegu staðreynd að Danska hljómsveitin Aqua á topp single lagið á öllum Norðurlöndunum og lagið sem var hlustað svona mikið á var Barbie girl. Ég hefði aldrei trúað þessu, hélt nú að AHA eða ABBA hefðu vinningin þarna en nei.....hehe Svo var líka rætt um velferðarkerfið sem við höfum og svo var seinasti fyrirlesturinn frá einhverju fólki frá einhverri nefnd man því miður ekki hvað það var-eitthvað um Samstarf norðurlandana og þar var ísland auðvitað nefnt í gríð og erg sem dæmi um hitt og þetta vegna ástandsins þar núna. Svo þurftu þau endilega að gera mér það að sýna GDP allra norðurlandana árið 2007 og öll norðulöndin voru með voðalega fínar tölur sem voru allar um 20-30 ef mig minnir rétt og svo færði ég mig neðar og neðar listann þangað til ég sá ísland. GDP íslands árið 2007 er 1.1% vá ég held ég hafi roðnað fannst þetta hálf sorglegt að sjá þessa hræðilega lágu tölu... vonandi lagast þetta ef við horfum á björtu hliðarnar Brostu framan í heiminn og hann brosir framan í þig er það ekki !!?? En hvað finnst fólki svona almennt um til dæmis konungsdæmi og vonpnaframleiðslu á norðurlöndunum ??? Tókum um daginn herbergismynd fyrir árbókina og ég fékk þess líka góðu hugmynd sem við notuðum, vonandi sjái þið hvað þetta er. Smá vísbending Við búum í Norway house 204 (NH 204) Vonandi eiga allir góða helgi !!

»
16.03.2009 10:25:44 / ingunn-norge
Jæja þá er komin ný vika en það er nú gott að maður hafi eitthvað til að hlakka til því næstu helgi þá er Cabin partý- sem er partý í bæ um 6 km frá skólanum þar sem að fólk má drekka svo að það fara allir og hafa gaman saman !  Við höfum ekki haft Cabin partý síðan fyrir jólafrí vegna þess að það urðu 2 slys á seinasta ári þar sem að brotnaði borð og klósettseta og við vorum í vandræðum með að fá eigendurna til að leigja okkur húsið aftur. En sem betur fer þá fengust þau loksins til þess að gera það en það verður líklega aðeins dýrara en venjulega, en vonandi ekki of dýrt Seinustu helgi á föstudaginn þá skelltum við okkur á "Jazz" tónleika nokkrir krakkar úr skólanum. Ég man því miður ekki hvað hljómsveitin heitir en þeir voru frá svíþjóð og notuðu mjög sérstök hljóðfæri. Þeir voru með bundið á hig hat-inn bein og bjöllur sem að skelltust saman þegar að diskarnir hreyfðust einnig við hliðiná trommaranum voru bein bundin upp og notuð sem sílófónn/tréspil. Svo voru þeir með allskonar flautur og fiðlur. Við vorum á barnum þangað til klukkan 2 og var það mjög næs þar sem að þetta er í fyrsta skiptið sem ég hef gert eitthvað svona sem tengist ekki skólanum að nokkru leiti! Við slökuðum bara á fólk fékk sér bjór og spjallaði og allir voru svo slakir, þetta var rosalega notarlegt kvöld  Á laugardaginn var ég samt svo dauð að ég gerði ekkert, var gjörsamlega búin á því. Við reyndum nú samt að horfa á mynd sem endaði þannig að bæði ég og Liu frá kína vorum sofandi á Jens og hann var einn að horfa á myndina Næstu helgi þá er fyrsta sýning hjá leiklistar hópnum mínum og verðum við með dansverk sem er um 15-20 mínútur. Það fjallar um áhrif tísku á fólk og hvernig því er stjórnað í gengum tísku. Ég ætla að reyna að biðja einhvern um að taka þetta uppá myndband svo að ég geti sett þetta á netið  Vona að þetta eigi eftir að ganga vel þó að það sé mikið sem eigi eftir að gera ennþá þó að það sé innan við vika í að við sýnum...  Ég fékk þessa líka flottu mynd af mér syngja í UKM og langaði að skella henni með blogginu   
»
12.03.2009 09:00:13 / ingunn-norge
Jæja loksins nálgast helgin, ég er eitthvað svo þreytt í dag get ekki beðið eftir því að fá helgina ! Seinustu helgi þá var UKM sem er svona eins og hæfileika keppni fyrir unglinga. Við fórum nokkur úr skólnum og tókum þátt  Ég komst ekki áfram en það voru nokkrir úr skólanum sem komust áfram, en það var samt mjög gaman að taka þátt og geta staðið á sviði fyrir framan fólk, sakna þess pínu að flytja lög fyrir framan fólk  En vonandi get ég gert eitthvað af því næsta sumar þegar ég kem heim. Í gær var svo smá sýning í skólanum þar sem um 15 stelpur úr skólanum fluttu píkusögur, eða vagina monologues. Það var mjög gaman en ég náði samt bara að horfa á um klukkutíma vegna þess að ég þurfti að fara á æfingu með Eþíópíu förum fyrir afríkusýninguna sem er í Apríl að ég held  Ætlum að dansa eins og við sáum fólk dansa í Eþíópíu og Bante sem er 2 árs neminn frá Eþíópíu ætlar að hjálpa okkur að gera þetta flott ! Svo mjög fljótlega þá erum við að fara að sýna smá sýningu í leiklist. Það er sýning þar sem eru engin orð bara dans. Í dansinum reynum við að útskýra sögu sem við bjuggum til og ég held að flestir eigi eftir að skilja á ná söguþræðinum. Það verður samt gaman að heyra hvað fólk segir þegar við erum búin að sýna því að það verða örugglega skiptar skoðanir um söguna og hver tilgangurinn var. En sýningin verður ekki fyrr en um 20 Mars svo að við höfum enn smá tíma til þess að æfa okkur! Er í ToK sem er eins og lífsleikni og er að deyja úr leiðindum svo ég ákvað að skrifa smá blogg Hef nú samt sem áður voðalega lítið annað að segja.......  -Ingunn
»
04.03.2009 11:37:15 / ingunn-norge
Gær dagurinn var mjög góður það var vísindadagur hjá 1. árs nemum. Við fórum á fund klukkan 8 og var þar kynnt fyrir okkur það sem við áttum að vera að gera yfir daginn. Ég tek vísindi sem heita E-systems and sociaties og á þessu ári var því breytt lítillega og erum við fyrstu nemendurnir til að taka það sem félagsvísindi og náttúruvísindi. Við vorum því alveg ógeðslega heppinn og þurftum ekki að taka þátt í þessum vísindadegi frekar en við vildum !!  Þetta var alveg æði, ég fór því í herbergið mitt og svaf frá 9-12 ahhhh.....það var ekkert smá notarlegt. Eftir hádegismat þegar ég var að labba úr mötuneytinu þá var smá úði og þegar ég leit til baka í átt að mötuneytinu sá ég regnboga sem myndaðist yfir húsunm. Ég hef aldrei séð svona fallegan regnboga. ÞAð var eins og hann kæmi uppúr firðinum og fór svo yfir mötuneytið og endaði svo í trjánum í hlíðinni fyrir ofan skólasvæðið. Hann líka svo lágt að manni fannst eins og maður gæti bara teygt sig upp til að snerta hann  Ég kom við í herberginu hans Jens og sagði honum og Liu Liand (kína ) herbergisfélaga hans frá regnboganum. Þeir kíktu báðir útum gluggan og þeim fannst þetta svo flott að þeir hlupu báðir út með myndavélarnar sínar og tóku myndir. Liu sagði mér að í Kína þá sæi hann aldrei regnbogann svona lágt í lofti hann væri alltaf lengst,hátt uppi ! Ég fékk svo aðra sögu þar sem Jens sagði mér að þegar hann var lítill þegar að það kom regnbogi þá flýtti hann sér alltaf út og byrjaði að labba í áttina að enda regnbogans til þess að komast undir hann, hehehe en auðvitað alltaf á endanum þá hvarf hann þegar rigningin hætti. Hvern dreymir ekki um það sem barn að komast undir regnbogann, ég man nú ekki hvort ég reyndi en ég hugsaði oft um það hvort það væri hægt og ef það væri hægt hvort eitthvað myndi þá gerast þega þangað væri komið .......Skemmtilegar hugsanir  En ef þið pælið aðeins í því, ef það væri hægt hvað myndi þá eiginlega gerast..........?????
»
02.03.2009 11:28:57 / ingunn-norge
Í seinustu viku var skíðavika hjá 1 árs nemum !! Það var æði, ég var í hóp númer eitt sem hafði dagskrána--> 1.dagur-stutt gönguskíðaferð, 2.dagur-löng gönguskíðaferð(9km), 3.dagur-svigskíði/Downhill og svo 4.dagur-meira svig/downhill. Fyrstu 2 dagarnir voru ágætir það var fínt að vera á gönguskíðum en það jafnaðist ekkert á við svigskíðin seinustu 2 dagana  ÞAð VAR GEGGJAÐ !! Það var svo miklu skemmtilegra og betra að hafa stjórn á svigskíðunum heldur en gönguskíðunum. Gönguskíði eru ekkert voðalega góð til þess að stoppa maður endar alltaf á rassinum eða eins og sumir, á andlitinu !! hehe  En það slasaðist nú engin alvarlega, 2 stelpur meiddu sig smá. Ein missti tánögl ekki spurja mig hvernig ! og önnur braut eða brákaði illa lítið bein í öklanum hún labbar um núna svo að það þarf ekki að taka löppina af Á kvöldin horfðum við á myndir og klukkan hálf 9 fengum við kakó og smákökur, sem var roselga gott eftir brjálaðan dag á skíðum Við vorum nú samt öll voðalega þreytt á kvöldin og ég vakti aldrei lengur en til rúmlega miðnættis. Við gistum á rosalega fínu og kósý hóteli en sumir þurftu hinsvegar að gista í litlum kofum 100metra frá hótelinu. Ég og Eva gistum í einum af þessum kofum saman ásamt 4 öðrum stelpum sem var mjög fínt! Greyið 2 árs nemar voru eftir á skólasvæðinu og þurftu að læra fyrir prufu prófin sín sem að byrjuðu í dag. Þeim langaði samt öllum að koma með okkur og öll töluðu þau um hversu gaman það hafi verið í þeirra skíðaviku. Við fórum samt á nýtt skíðasvæði og nýtt hótel og kennararnir sögðu að bæði væru mun betri en það sem 2 árs nemarnir fengu árið áður. Veðrið sem fengum var æðislegt og seinastadaginn var það fullkomið, það var sól, engin vindur engin snjókoma, fullkomin hiti, ekki kalt en ekki of heitt- alveg fullkomið !! Þegar við komum heim frá Eþíópíu og stoppuðum í Danmörku þá keypti ég mér þessi líka mögnuðu skíðagleraugu svo að ég var ótrúlega kúl með þau  . Það voru mjög margir sem að þessa 4 daga voru að prófa skíði í fyrsta skipti og stóðu sig bara mjög vel og lærðu hratt og komust fljótt uppí alvöru brekkuna. Ég var nokkuð fljót að komast upp í alvöru brekkuna og fá passa til að fara ein En núna er blessaður skólinn byrjaður aftur og maður verður að snúa sér aftur að náminu.....því miður. En ég er farin að huga að heimför minni og er komin með vinnu heima á krók hjá Kristínu og Sigga, veit ekki alveg við hvað en veit að það er allavega vinna  ! Annars gengur bara ágætlega í skólanum og ég er að fá betri einkunnir í heimspeki, var svolítið týnd í byrjun skólans en er að finna mig hægt og rólega  Svo er ég að fara í próf í E-systems sem er náttúruvísindin mín, veit ekki alveg hvernig það fer finnst ég ekki læra neitt í þessum tímum. Þarf bara að taka kennslúáætlunina og læra hana utan af og þá bjargast þetta....vonandi ... -Ingunn bókaormur .....NOT
»
18.02.2009 22:20:05 / ingunn-norge
Jæja valentínusrdagurinn var á Laugardag og var hann
voðalega ljúfur
Fórum í smá göngutúr ég og jens saman og svo gáfum ið hvort
öðru rósir. Það var hópur hérna í skólanum sem bauð uppá að kaupa rósir og ég
keypti 10. 5 Rauðar handa Jens, 4 bleikar handa öllum herbergisfélögum mínum og
svo eina appelsínugula handa youssef Svo um kvöldið var valentínusarkaffi og sýning og þar söng ég hvorki meira né
minna en 4 lög sem tókst alveg ágætlega. Söng lögin Islands in the stream með
strák frá Austur Tímor-Natalino, How do I live without you-leann rhimes, fields
of gold-sting og svo skellti ég mér á eitt klassískt til að breagða hópnum smá
og tók lagið Think og me úr phantom of the opera það tókst æðislega vel,
allir voru rosa hissa en samt fannst þetta rosalega flott Þetta var rosalega
ljúfur og góður dagur, fékk sjö fallegar rauðar rósir frá Jens ásamt rosa sætu
korti og súkkulaði !
Svo í gær fékk ég hálsmenið mitt sent frá París en ég
gleymdi því á hótelinu sem við gistum á þegar við fórum þangað í Nóvember alveg
akkúrat ég .......en nú er það komið til baka sem betur fer !!!
Fljótlega ætlum við svo í leiklistarhópnum að setja upp
sýningu sem við höfum verið að bú til frá grunni. Það eru engin orð sem verða
sögð bara dansar og músík en við segjum ekkert ! Við höfum verið að búa til
dansa sem hefur tekið langan tíma og höfum við ekki nema um 4 vikur eftir fyrir
utan skíðavikuna sem er í næstu viku. Ég er að sjá um að búa til freestyle dans
fyrir hluta af hópnum sem er mjög gaman er ég þarf að vera mjög dugleg ! En svo
í þessari viku á sunnudag byrjar skíða vikan ! Við förum á hótel í nágrenninu,
bara 1 árs nemar og skíðum í 5 daga, geggjað stuð ! !!! Á meðan verða greyið
2 árs nemar að læra fyrir „prufu próf“ sem eru gerð til að sína þeim við hverju
þau mega búast í alvöru prófunum sem þau fara svo í síðar á þessari önn.
Ég er búin að skemmta mér svooooo geggjað vel í kvöld, er
búin að hanga á youtube og vera að skoða íslensk disney lög !! Það er svo
geggjað, er búin að sakna þess svoo mikið, íslenskar teiknimyndir rokka feitt.
Var í herberginu hans Jens að hlusta á þessi lög og herbergis félagi hans snéri
sér að mér og spurði : Snúiði öllum andskotanum yfir á íslensku, hafiði þýtt
eða !!?!?! hehe mér fannst þetta voðalega fyndinn spurning en svaraði samt: Já
auðvitað afhverju ekki J!
svo fann ég líka eldgamlan
spaugstofuþátt og horfði á hann og hlóg eins og hálviti hehehe
Þarf að æfa mig meira í að tala íslensku er að fara svo
mikið aftur ...
Þyrfti kannski líka að tala aðeins oftar við foreldra mína ...... fæ stundum
e-mail þar sem ég er spurð hvort ég sé enn á lífa ... hehe En ætla að
skella mér í rúmið ætla að synda í fyrramálið...góðar nætur :*
»
07.02.2009 18:31:31 / ingunn-norge
Mansuri í Human right´s
Um daginn fengum við mann að nafni Mansur Rajih. Hann kom á
vegum Amnesty international samtakanna sem við höfum hérna í skólanum. Árið
1983 var hann handtekin fyrir morð sem hann átti að hafa framið á 84 ára
karlmanni, en það var ekki satt. Hann var í fangelsinu í 15 ár þar sem hann
upplifði marga hræðilega hluti! Hann var dæmdur fyrir að drepa þennan mann og
sat í fangelsi í 15 ár fyrir morð sem hann ekki framdi, hann sat í 15 ár og á
hverjum degi hélt hann að hann yrði drepinn því það var dómurinn sem hann fékk,
dauðadómur. Hann fékk engar upplýsingar um það hvenær hann skildi deyja og því
beið hann á hverjum degi þess að hann yrði tekin og myndi aldrei sjá aftur
konuna sem hann elskar. Árið 1998 var
hann frelsaður með hjálp alþjóða þrýstings sem settur var á fangelsið, Amnesty
intenational vakti athygli á þessu vandamáli sem endaði með því að hann var
frelsaður og dæmdur í ævilanga útlegð frá Jemen. Hann býr nú í Noregi en hann
saknar Jemen og það er hans heimili og hann vill snúa aftur heim. Hann segir að
það sé erfitt að búa í öðru landi en sínu eigin jafnvel nú þegar hann hefur
fengið Norskan ríkisborgararétt. Mansuri segir að í öðru landi en sínu eigin sé
maður ekki séður sem ríkisborgari, aðeins gestur í óákveðin tíma.
Spurningar frá
nemendum í mannréttindatíma: Hvernig hjálpaði
eiginkona þín þér að komast útúr fangelsinu? -
Ég var tekin í fangelsi og þau tóku föður minn
og frænda og konan mín var sú eina sem að stóð bakvið mig, konan mín er menntuð
og hún talaði um mig og hvað var gert við mig og vakti athygli annarra á því.
Hún talaði við fréttamenn og fleira fólk sem að hjálpaði að vekja athygli á
þessu. Hún studdi mig öll þessi 15 ár þó að hún væri undir gríðarlegum þrýsting
.
Var konan þín pínd? -
Hún var í fangelsi í smá tíma vegna þess að hún
var að reyna að hjálpa mér
Hefur sannleikurinn
komið í ljós með þetta morð sem þú varst sakaður um? -
Það var ríkisstjórnin sem að drap manninn til
þess að koma mér í fangelsi , þessi maður var hátt settur, leiðtogi flokks
fólks svo að þetta var mjög alvarlegt.
Er það oft sem að
svona hlutir gerast að fólk er sett í fangelsi vegna falskra ástæðna? -
Já of oft
Var fleira fólk í
fangelsinu sem að var þar vegna rangra ásakana?
-
Já, það var mikið af pólitískum föngum, ég var
ekki með byssu og miðaði á stjórnina, ég skrifaði aðeins mínar skoðanir og það
var ástæðan fyrir því að ég var settur í fange Gaf stjórnin þér
eitthvað eftir að hafa haldið þér í fangelsi í 15 ár?
-nei stjórnin tók meira að segja af mér landið mitt þar sem ég
var sendur í útlegð og enn þann daginn í dag fæ ég bréf frá þeim þar sem þeir
segja mér að koma ekki aftur. />Hvernig var
tilfinningin að hitta konuna þína eftir þessi 15 ár (mín spurning)?
Það er eftir að segja hversu ánægður ég var. Ég samdi ljóð þar
sem ég segi frá því hversu frábært það var að hitta hana aftur eftir 15 ára
aðskilnað. En það eru varla til orð sem lýsa því hvernig það var.
Fleiri upplýsingar: Hann fékk 300.000 bréf frá fólki allstaðar úr heiminum. Seinasta árið í fangelsinu var faxið í
fangelsinu bilað því að það voru svo mörg bréf að koma til mín frá fólki. Ef hann hætti ekki í pólitík þá átti hann að vera drepin,
hann var í raun í fangelsi því að hann var pólitískur og leyndi því ekki. Meðferð þegar hann var píndur: Hengja mann upp eins og
kjúkling og maður er barinn með svipu , það sem er sárast er að hanga, sagði
Mansuri. Þessi maður er hetja og það er æðislegt að hann var
frelsaður úr fangelsinu. Það er hræðilegt að svona hlutir skuli enn gerast í
heiminum. Fólk sem á það alls ekki skilið og er aðeins að reyna að víkka
sjóndeildarhring annarra með skrifum er fangelsað fyrir að hafa skoðun á stjórn
landsins. Hverskonar frelsi höfum við ef við höfum ekki frelsi til að hafa
okkar eigin skoðanir!! Ég veit að ég sem kem frá íslandi á sérstaklega erfitt með
að skilja þetta því að í mínu landi gerast ekki svona hlutir en síðan ég kom í
skólann hérna úti hef ég kynnst svo mörgum hlutum sem ég sé ekki heima. Gott
dæmi er Saif hann er/var 1 árs nemi í skólanum frá Gaza. Hann fór heim í
jólafríinu, sem byrjaði áður en sprengingarnar byrjuðu. Hann fór heim þó að
honum hafi verið ráðlagt ekki að fara en hann langaði til að hitta fjölskylduna
sína sem hann saknaði mjög mikið. Núna vegna stríðsins og sprenginga kemst hann
ekki í skólann aftur. Hann er fangi í sínu eigin landi því að landamærin eru
lokuð á Gaza enginn kemst út og engin kemst inn. Það var erfitt að komast inn
og út áður en sprengingarnar urðu og vissi hann að áhættan sem hann tók var næg
áður en sprengjurnar hrundu úr loftinu en núna er allt lokað og læst. Það er
engin sem getur gert neitt, þetta finnst mér hræðilegt en það er ekkert hægt að
gera nema vona að hann lifi !!
Núna skil ég svo vel hvað mamma meinti alltaf þegar hún
sagði Ingunn mín þú ert svo heppinn að búa á íslandi. ÉG veit að við erum í
djúpum skít með efnahagsástandið en lítiði á björtu hliðarnar! Við erum ekki
hrædd um að deyja á hverjum einasta degi vegna sprengjuárása. Það var annar
strákur Sarmed, sem lýsti reynslu sinni fyrir mér áður en við fórum í vetrarfrí.
Hann sagði mér frá því að eitt sinn var hann sofandi þegar hann vaknaði við því
lík læti. Það var verið sprengja allstaðar í kringum hann, pabbi hans tók hann
og það var ekkert sem hægt var að gera því ekki var öruggt að fara út svo að
pabbi hans tók hann, skreið með hann undir rúm og þar voru þeir alla nóttina. Þessa
sögu sagði hann mér nokkrum dögum eftir að einn af hans bestu vinum var drepinn
af hermönnum hann hafði verið úti með fleira fólki og hermennirnir höfðu skotið
á fólkið. Í gær var kynning( World
today- hittumst í samkomusal þeir sem vilja og það er kynning um málefni
líðandi stunda og svo rökræðum við um lausnir og fleira) á þjóðarmorðinu sem í
Congo. Það eru ekki margir sem vita um þetta mál en samt sem áður eru um 4-5 milljón manns sem hafa
dáið og það gerir þetta mál 2. Stærsta þjóðarmorð sögunnar á eftir seinni
heimsstyrjöldinni þar sem um 6 milljón manns létu lífið. Hvernig stendur á því
að engin talar um þetta !! ??? Ástæðan er sú að rík lönd allstaðar í heiminum
vilja ekki tala um þetta því að fyrirtækin sem að versla í Congo hagnast af
þessu. Allt sem keypt er frá Congo er ódýrt og ef að talað verður um þetta
stríð þá hækka öll verð og hvað gerist þá allstaðar, allir verða kolbrjálaðir.
Eitt af mjög stórum vandamálum í þessu hræðilega stríði eru nauðganir, sagt
var í kynningunni að UN(sameinuðu þjóðirnar) hafa verið með hermenn í Congo til
að reyna að halda friðinn og eru þeir meðal annars þátttakendur í nauðgum.
Hvernig er hægt að laga svona hluti ef að helvítis hermennirnir sem að eiga að
vera að reyna að laga ástandið gera það bara verra !!!! Svona hlutir gera mig
svooooo ótrúlega reiða !! Hvert getur fólkið leitað hjálpar er það ekki bara
fast í endalausri hringiðu. Þegar
kynningin var þá var sýnt myndband frá youtube.com sem fjallar aðeins um þetta
stríð endilega horfið á það. Hérna er linkurinn inná myndbandið: http://www.youtube.com/watch?v=3nd0LCdBAQU
Ég fékk samt sem áður
góðar fréttir a Saif um daginn þar sem að ég heyrði að hann kæmi líklega ekki
í ár því að hann er búin að missa úr svo mikið af skólanum en í staðinn þá
kemur hann inn á næsta ári sem 1 árs nemi :-) Hann er einn af góðum vinum hérna
í skólanum og hlakka ég mjög til þegar hann kemur aftur!
Annars er allt búið að ganga mjög vel undanfarið. Skellti
mér á skauta um daginn sem var mjög mikið fjör og svo er á fullu undirbúningur
fyrir valentínusardaginn sem er á laugardaginn næsta 14.feb. Það verður
kaffihús og skemmtileg stemning hjá okkur og auðvitað verða flutt nokkur væmin
lög sem meðal annars ég syng :-)
Svo fyrir um það bil 2 vikum var Asíksur dagur þar sem að öll lönd frá Asíu héldu kynningu um landið sitt í einu af kennslu húsunum, mjög áhugaver. ÞAu voru með allskonar búninga og dót frá sínu landi og er ég búin að setja inn myndir frá þeim degi endilega skoðið það !!
En ég ætla að hætta þessu blaðri verð að fara
að vinna í ensku ritgerð sem ég þarf að klára fyrir mánudag ...
Endilega kommentið og spyrjið ef eitthvað vekur áhuga ykkar
eða þið skiljið ekki ....
-ingunn
»
20.01.2009 19:58:22 / ingunn-norge
Jæja ferð okkar til Afríku byrjaði skrautlega eins og allar
okkar ferðir til og frá skólanum. Við
töluðum við Odd og fleira fólk um að taka taxa saman og á miðvikudeginum stóðum
við úti með töskurnar okkar ásamt næstum öllum úr skólanum. Það voru 2 taxar á
ferðinni og í ferð númer 1 sem að við ætluðum öll að fara saman í þá var ekki
pláss því að það voru 2 -3 manneskjur í bílnum þegar við komum þangað. Við
strákarnir auðvitað stukku beint inní bílinn og voru ekkert að hugsa um okkur
hugsuðu bara að við kæmum í næstu ferð. Þegar hann fór ferð númer 2 þá voru
krakkar búnir að biðja hann um að koma með taxann uppað einu nemendahúsinu svo
við Eva biðum bara rólegar eftir ferð númer 3. Við biðum og biðum og biðum en
aldrei kom Taxinn. Ég hringdi í Odd og hann hringdi í Taxann sem að fór bara „heim“
þó að við reyndum að kalla til hans og vinka til þess að láta vita að hann ætti
að koma aftur. ÉG varð alveg brjáluð því að rútan sem að við ætluðum að ná í
flekke átti að fara eftir 10-15 mín. Við reyndum að finna kennara til þess að
semja við að keyra okkur en þegar við vorum að setjast uppí bílinn hjá henni þá
hringdi Odd og sagði mér að rútan væri því miður farin og að bilstjórinn hefði
ekki getað beðið. Mig langaði að öskra úr mér lungun, ég var svoooo hrædd!!! Í
heppni þá var ég að tala um þetta við 1 kennara meðan ég var að hugsa um lausn
og hann sagði mér að það færi rúta til Bergen um kvöldið milli 8 og 9. Við
fórum saman og double tékkuðum þetta á netinu og það var rétt svo á endanum komumst
við til Bergen. En ég held að ég hafi sjaldan verið svona reið á ævinni !!
Við sváfum hjá Antti þá nótt en fórum svo á flugvöllinn. Flugið
var langt fyrst flugum við frá Bergen til Kaupmannahafnar- 2 klst, stoppað þar
í smá tíma svo frá köben til dubai sem var um 7-8 tíma flug og þar var stoppað
frá um það bil 6:00 til 16:00. Við ákváðum að skreppa aðeins út til að sjá smá
af dubai og settumst inná kaffihús til að fá okkur smá að borða. Allt var svo
stórt , hehe Dona keypti sér stórann bolla af Mokka kaffi og vá hann var í
alvörunni stór !! ÉG hélt að bollarnir hans Ingimars afa væru nokkuð stórir en
þeir voru bara barbie bollar miðað við þennan !! Við skoðuðum líka
morgunblaðið og það var næstum of stórt fyrir eina manneskju að halda á, það
var mjög fyndið að sjá Pete halda á því því að hann er ekkert sérstaklega stór
maður svo að hann sást varla meðan hann var að skoða það Svo eftir að við vorum búin að borða og sátum
þarna í þessum þykku og þægilegu sófum þá sofnuðum við ....hehe það hlítur að
hafa verið ekkert smá fyndið að sjá okkur þanna 5 manneskjur steinsofandi í
sófa !! Ég velti því enn fyrir mér afhverju okkur var ekki hent út 
Svo var það seinasti
spretturinn frá dubai til eþíópíu sem var um 3 klst. Þegar lent var í Eþíópíu
tók Gary við okkur á flugvellinum. Gary er eigandi fyrirtækisins CPMS sem að
sér um verkefnið í Gambella, sjálfur er hann verkfræðingur og kemur upprunalega
frá Bretlandi en hefur búið í Addis Ababa í 15 ár. Hann á 2 börn sem eru bæði
ættleidd frá Afríku og svo er hann að hjálpa 2 manneskjum frá Addis sem ekki
hafa haft efni á því að borga fyrir skóla að klára háskóla og hjálpa þeim að
borga allt. Hann er alveg frábær, mætti vera til meira fólk eins og hann !!
Við vorum í Addis í 2 daga áður en haldið var í 3 daga
bíltúr til að komast til Gambella og vegurinn var ekkert of góður auðvitað möl
alla leið. Bílstjórinn okkar var æðislegur og óskuðum við að við hefðum getað
hitt hann aftur þegar við fórum aftur til Addis en því miður gerðum við það
ekki. Við komum til Gambella og vorum
bara nokkuð ánægð. Mér líkaði strax vel við þennan litla bæ sem var samt alveg
risastór fólk bara býr svo þétt að maður gerir sér ekki almennilega grein fyrir
því hversu margir það eru. Gary sagði
okkur að það væri til dæmis ný búið að telja hversu margir það væru sem byggju
í Addis og útkoman var um 2.5 milljón manns en Gary sagði að í raunveruleikanum
væri það nær því að vera 5.2 milljón mannst því að á hverjum degi flytur fólk
frá smábæjum og til Addis til þess að reyna að lifa betra lífi. Þetta fólk finnur
sér svo bara spýtur og kaupir plast fyrir smá pening og setur það yfir
tréstangirnar og þá er það búið að byggja sér hús.
Í addis gerðum við marga skemmtilega hluti, við fórum á The
Crown hotel og borðuðum og sáum þar sýningu þar sem dansað var allskonar Eþíópíska
dansa sem var alveg frábært að sjá og ætla ég að reyna að setja myndböndin inná
youtube, læt vita þegar þau eru komin þar inná. Við smökkuðum einnig í fyrsta
skipti injera sem er al eþíópskur matur og er borðað þar í hvert mál ! Þetta er
nokkurskonar súrt pönnukaka, þetta er sett á disk og svo er allskonar matur
settur í litlum hrúgum hér og þar á brauðið.
Þetta er mjög sérstakt en maður getur orðið ansi þreyttur á því ef maður
þarf að borða það á hverjum einastadegi í hádegis og kvöldmat! Svo fórum við líka í lítinn dýragarð þar sem
að ég sá ljón en það var eiginlega allt sem hægt var að sjá þar, ljón og apar.
Einn apinn var laus og mig langaði rosalega að leika við hann og ég labbaði að
honum en var með töskuna mína fyrir framan mig því ég var pínu hrædd við hann
þó að hann var mjög lítill. Þegar ég labbaði að honum hélt hann áfram að leika
sér og stökk á töskuna mína.....ég var svo hrædd að ég bakkaði en vildi samt
ekki sleppa töskunni sem apinn hékk á ...hehe hann sleppti á endanum sem betur fer
áður en ég dó úr hræðslu.
Þegar við komum til Gambella var ekki mikið að gera, það
eina sem að hægt var að gera eftir vinnu var að fara á markaðinn ef manni
langaði. Við vöknuðum klukkan 6 á hverjum degi og fórum á vinnusvæðið og unnum
smá og borðuðum svo morgunmat klukkan 8. Síðan unnum við frá klukkan 8 til 12
og þá var borðaður hádegismatur sem að var eldaður á svæðinu undir stóru
fallegu tré. Svo fórum við „heim“ og slökuðum á til klukkan 3 því að það var
svo heitt milli 1 og 3 að það var ekki hægt að vinna. Svo var unnið frá 3 til
klukkan 6 og þá fórum við „heim“ og borðuðum :-) Fyrstu dagana var ég svooo
þreytt á kvöldin og þegar við fórum eitt kvöldið á hótel að borða þá sofnaði ég
óvart... á mynd af mér sitjandi í plaststól sofandi með kókflösku í
hendinni.
Það sem við gerðum á svæðinu var að: færa múrsteina frá A
til B, hreinsa svæði sem var fullt af grasi og litlum trjám og var það gert með
svona marchetti sverðum og litlum hnífum sem litu út eins og litil ljá. Það var
hörkuvinna, svo merktum við með múrsteinum: hvar komið er inná svæðið á bíl, hvar
vegurinn á að vera, hvar á að vera pittur fyrir bio-gas. Svo grófum við pitt
4x4 metrar og um 1 metra djúpan til þess að fullkomna gerð þakflísanna. Þegar
að þær eru búnar til úr sementi og sandi og fleiru þá eru þær settar í vatn
eftir að þær eru mótaðar því að sementið verður mun sterkara eftir að það
þornar ef að þær eru settar í vatn. Þessu pittur fyrir flísarnar tók okkur um 2
vikur að fullgera. Það var óendanleg vinna, jörðin var svo hörð og það eina sem
við gátum notað voru skóflur og hakar. Svo eftir að var loksins búið að moka
pittinn ok sementa veggi með múrsteinum þá varð að plasta pittinn og var það
gert með að kalla til sérfræðinginn til að sementa veggina að innan.
Við héldum svo heim til Noregs þann 8 janúar eftir að hafa verið
í Gambella í um 3 vikur og svo í Addis í 4 daga. Það var fínt að fara til Addis
til að ná smá slökun áður en við fórum í stressið í skólanum aftur. Við Vorum
svo hjá Odd í 2 daga áður en við fórum aftur á skólasvæðið. En auðvitað tókst
það ekki fullkomlega því við misstum næstum á ferjunni því að annað aftur dekkið
á bílnum pabba Odd sprakk. Það á bara alls ekki að takast að komast áfallalaust
á skólasvæðið :-) En Afríka var æði ég lærði margt um þeirra menningu og siði,
það er margt sem ég vildi að ég gæti breytt en ég veit að það verður allt að
taka sinn tíma og það er erfitt að breyta hlutum sem að í huga fólks eru bara
eins og þeir eru of fólki finnst óþarfi að breyta því því að hlutirnir hafa
verið óbreyttir svo lengi. Meðan við
vorum í Gambella bjuggum við til skuggaspjald til þess að hengja verkfærin á.
Við teiknuðum mann og konu halda á skóflum, haka og fleiru. Þegar Jajo 18 ára
strákur sem var að vinna á svæðinu sá þetta, stoppaði hann og horfði á
spjaldið. Hann leit á mig og spurði, er þetta kona ?? Já svaraði ég. Afhverju
er hún að halda á skóflu ?Afhverju ætti hún ekki að halda á skóflu spurði ég.
Af því að hún á að elda svaraði Jajo, konur eiga ekki að moka þær eiga að hræra
í pottum. Þetta fannst mér mjög erfitt að heyra, í 5 mínútur reyndi ég eins og best ég gat að
reyna að láta hann skilja að konur gætu líka mokað. Ég nefndi gott dæmi, mig og
Donu ég sagði við Jajo: horfðu á mig og Donu Jajo við höfum verið hérna í 3
vikur og við höfum verið að gera allt það sem strákarnir hafa verið að gera,
við getum gert það líka. Hann horfði á mig tómum spyrjandi augum og sagði, en
kona á að elda. Ég vissi vel að það þýddi ekki að reyna að útskýra þetta meira
því að í hans huga er þetta það eina sem er eðlilegt. Ég vona að þetta sé eitt
af hlutunum sem eigi eftir að breytast og mennirnir eigi eftir að byrja að
hjálpa konunum meira en þeir gera í dag því að ef að fólkið vinnur saman þá er
hægt að uppskera svo miklu meira !
Endilega spyrjið mig spurninga í gestabókinni og ég mun
reyna að svara á blogginu eins vel og ég get. Ég gat ekki skrifað um allt því
miður en ef þið spyrjið þá veit ég allavega hvað þið viljið vita meira um.
Vonandi hafi þið notið jólanna og áramótana vel. Mér líður
eins og ég hafi bara sleppt áramótum og jólum og get ég sagt alveg óhikandi að
þetta hafi verið mín undalegustu jól en samt alls ekki vond, ég lærði að meta
einfalda hluti og ég sakna þess ekkert að hafa ekki verið að rífa upp gjafir
eða borða mig pakk sadda.
Lærum að njóta þess sem við eigum og sínum þakklæti fyrir
það. Í hvert einasta skipti sem þú kvartar yfir kvöldmatnum eða hvað það er
lítið úrval í búðinni hugsaðu þá til þess að það er fólk sem hefur EKKERT val
og jafnvel fær ekkert að borða.
Eþíópsk orð />
Ammasikenalo-takk
Búnna-kaffi
Salam nú-góðan
dag
Shai(borið fram eins og feiminn á ensku)-Te
Kúrs-morgunmatur
En gúlalfyrrfirr -omeleta
Kveðja: Ingunn :-)
»
Síður: 1 2 3
|
Heimsóknir
Í dag: 7 Alls: 16625
|